Tún ungmennahús
þriðjudagur, 5. maí 2015
sunnudagur, 3. maí 2015
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Norðurþings fyrir sumarið 2015
Hér er hlekkur inn á rafrænt umsóknareyðublað:
Rafrænt umsóknareyðublað
Helstu upplýsingar og reglur Vinnuskólans - lesist
vel.
Í sumar verður Vinnuskóli Norðurþings starfandi fyrir ungmenni fædd árin 2000 og 2001, þ.e. þá sem í vor ljúka 8. og 9. bekk. Vinnuskólinn er að þessu sinni ekki í boði fyrir ungmenni sem eru að ljúka 10. bekk en þeim býðst að sækja félagsmiðstöð sem verður starfrækt í allt sumar.
Árgangur 2001 mætir í Tún kl. 08:00 mánudaginn
6. júlí
Árgangur 2000 mætir í Tún kl. 08:00
mánudaginn 15. júní
Laun eru sem hér segir:
Unglingar fæddir 2001, 459 krónur á klst. Unnið í 4 vikur - Tímabil 6. júlí - 31. júlí
Laun eru sem hér segir:
Unglingar fæddir 2001, 459 krónur á klst. Unnið í 4 vikur - Tímabil 6. júlí - 31. júlí
Unglingar fæddir 2000, 570 krónur
á klst. Unnið í 5 vikur - Tímabil 15. júní - 17. júlí
Skipulag starfsemi:
Vinnuskólinn er rekinn af Norðurþingi og
heyrir undir Tómstunda- og æskulýðssvið Norðurþings. Dagleg stjórn
Vinnuskólans er í höndum flokkstjóra. Helstu verkefni Vinnuskólans varða
snyrtingu og fegrun bæjarins og umhverfi hans. Einnig munu unglingarnir
vinna að skemmtilegum og uppbyggilegum hliðarverkefnum. Unnið er alla
virka daga vikunnar, 4 klukkustundir á dag. Vinnudagurinn er frá 8:00 til
12:00.
Röðun í flokka:
Vinnuskólinn lítur svo á að unglingar
þurfi að venjast því að vinna með hverjum sem er. Þeim er því ekki raðað
eftir vinahópum. Ekki er víst að þeir sem eru settir í hóp í upphafi
verði saman allt sumarið. Margar ástæður geta orðið til þess að
endurraða þurfi í hóp eða hópa.
Helstu kröfur til nemenda Vinnuskólans:
Gert er ráð fyrir að unglingur sem sækir
um vinnu í Vinnuskóla Norðurþings sé með umsókn sinni að lýsa yfir áhuga sínum
á því að taka þátt í starfi skólns og vinna samviskusamlega þau verk sem honum
eru falin. Unglingnum ber að sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur
skólans, íbúa sveitarfélagsins og þá sem með honum vinna. Klæðnaður þarf
að vera í samræmi við veður og vinnuaðstæður hverju sinni. Unglingar eru
beðnir um að hafa með sér nesti til að neyta í kaffitímum. Tóbaksnotkun
er alfarið bönnuð í Vinnuskólanum. Fari unglingur ekki að tilmælum
flokkstjóra eða sætti sig ekki við þær starfs- og vinnureglur sem gilda í
Vinnuskólanum verður honum gefið tækifæri til að bæta sig. Beri það ekki
árangur er hann sendur heim launalaust í lengri eða skemmri tíma og verður
forráðamönnum þá gert viðvart.
Ofnæmi eða aðrir kvillar:
Vinnuskólinn reynir að mæta vandamálum
vegna ofnæmis eða annarra sambærilegra kvilla. Til að hægt sé að taka
tillit til slíkra beiðna þarf að fylgja vottorð sérfræðings.
Myndatökur:
Í sumar verður tekið upp myndefni af
starfsemi Vinnuskólans til kynningar og skemmtunar. Forráðamenn þeirra sem kjósa að birtast ekki
á mynd skulu óska eftir því áður en Vinnuskólinn tekur til starfa. Fullt tillit verður tekið til þeirra óska.
Nánari upplýsingar veita
Aðalbjörn Jóhannsson yfirflokkstjóri, tun@nordurthing.is sími: 8455541
Sigurður Narfi Rúnarsson yfirmaður Vinnuskólans, tun@nordurthing.is sími: 6635290.
Aðalbjörn Jóhannsson yfirflokkstjóri, tun@nordurthing.is sími: 8455541
Sigurður Narfi Rúnarsson yfirmaður Vinnuskólans, tun@nordurthing.is sími: 6635290.
Með því að senda inn umsókn staðfestir
foreldri/forráðamaður að hafa kynnt sér reglur þessar.
Rafrænt umsóknareyðublað
þriðjudagur, 10. júní 2014
mánudagur, 9. júní 2014
fimmtudagur, 5. júní 2014
mánudagur, 19. maí 2014
Sumarstörf ungmenna
í Vinnuskóla Norðurþings - Húsavík.
Í sumar verður að venju rekinn Vinnuskóli fyrir nemendur efsta stigs grunnskóla í Norðurþingi.
Tekið er við umsóknum í Vinnuskólann frá deginum í dag, til og með mánudeginum 30. maí.
Rafrænt umsóknareyðublað er í hlekknum hér neðar á síðunni.
Árgangur 2000 mætir í Tún kl. 08:00 mánudaginn 30. júní.
Árgangur 1999 mætir í Tún kl. 08:00 þriðjudaginn 10. júní
Árgangur 1998 mætir í Tún kl. 08:00 þriðjudaginn 10. júní.
Laun eru sem hér segir:
Unglingar fæddir 2000, 443 krónur á klst. Unnið í 4 vikur - Tímabil 30. júní - 25. júlí
Tekið er við umsóknum í Vinnuskólann frá deginum í dag, til og með mánudeginum 30. maí.
Rafrænt umsóknareyðublað er í hlekknum hér neðar á síðunni.
Helstu upplýsingar og reglur Vinnuskólans - lesist vel.
Árgangur 2000 mætir í Tún kl. 08:00 mánudaginn 30. júní.
Árgangur 1999 mætir í Tún kl. 08:00 þriðjudaginn 10. júní
Árgangur 1998 mætir í Tún kl. 08:00 þriðjudaginn 10. júní.
Laun eru sem hér segir:
Unglingar fæddir 2000, 443 krónur á klst. Unnið í 4 vikur - Tímabil 30. júní - 25. júlí
Unglingar fæddir 1999, 551 krónur á klst. Unnið í 5 vikur - Tímabil 10. júní - 11. júlí
Unglingar fæddir 1998, 704 krónur á klst. Unnið í 8 vikur - Tímabil 10. júní - 1. ágúst.
Athugið að árgangur 1998 þarf að skila inn skattkorti.
Skipulag starfsemi:
Vinnuskólinn
er rekinn af Norðurþingi og heyrir undir Tómstunda- og æskulýðssvið
Norðurþings. Dagleg stjórn Vinnuskólans er í höndum flokkstjóra.
Helstu verkefni Vinnuskólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins og
umhverfi hans. Einnig munu unglingarnir vinna að skemmtilegum og
uppbyggilegum hliðarverkefnum. Unnið er alla virka daga vikunnar, 4
klukkustundir á dag. Vinnudagurinn er frá 8:00 til 12:00 eða 12:00 til
16:00. Endanlegt skipulag ræðst af fjölda umsókna.
Röðun í flokka:
Vinnuskólinn
lítur svo á að unglingar þurfi að venjast því að vinna með hverjum sem
er. Þeim er því ekki raðað eftir vinahópum. Ekki er víst að þeir sem
eru settir í hóp í upphafi verði saman allt sumarið. Margar ástæður
geta orðið til þess að endurraða þurfi í hóp eða hópa.
Helstu kröfur til nemenda Vinnuskólans:
Gert
er ráð fyrir að unglingur sem sækir um vinnu í Vinnuskóla Norðurþings
sé með umsókn sinni að lýsa yfir áhuga sínum á því að taka þátt í starfi
skólns og vinna samviskusamlega þau verk sem honum eru falin.
Unglingnum ber að sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur skólans,
íbúa sveitarfélagsins og þá sem með honum vinna. Klæðnaður þarf að vera
í samræmi við veður og vinnuaðstæður hverju sinni. Unglingar eru
beðnir um að hafa með sér nesti til að neyta í kaffitímum. Tóbaksnotkun
er alfarið bönnuð í Vinnuskólanum. Fari unglingur ekki að tilmælum
flokkstjóra eða sætti sig ekki við þæt starfs- og vinnureglur sem gilda í
Vinnuskólanum verður honum gefið tækifæri til að bæta sig. Beri það
ekki árangur er hann sendur heim launalaust í lengri eða skemmri tíma.
Ofnæmi
eða aðrir kvillar: Vinnuskólinn reynir að mæta vandamálum vegna
ofnæmis eða annarra sambærilegra kvilla. Til að hægt sé að taka tillit
til slíkra beiðna þarf að fylgja vottorð sérfræðings.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Narfi Rúnarsson yfirmaður Vinnuskólans, tun@nordurthing.is sími: 6635290.
Með því að senda inn umsókn staðfestir foreldri/forráðamaður að hafa kynnt sér reglur þessar.
Styðjið á hlekkinn hér að neðan til að fylla út rafræna umsókn:
fimmtudagur, 15. maí 2014
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)