mánudagur, 19. maí 2014

Sumarstörf ungmenna 

í Vinnuskóla Norðurþings - Húsavík.

Í sumar verður að venju rekinn Vinnuskóli fyrir nemendur efsta stigs grunnskóla í Norðurþingi.

Tekið er við umsóknum í Vinnuskólann frá deginum í dag, til og með mánudeginum 30. maí.

Rafrænt umsóknareyðublað er í hlekknum hér neðar á síðunni.

Helstu upplýsingar og reglur Vinnuskólans - lesist vel.


Árgangur 2000 mætir í Tún kl. 08:00 mánudaginn 30. júní.
Árgangur 1999 mætir í Tún kl. 08:00 þriðjudaginn 10. júní
Árgangur 1998 mætir í Tún kl. 08:00 þriðjudaginn 10. júní.

Laun eru sem hér segir:
Unglingar fæddir 2000, 443 krónur á klst. Unnið í 4 vikur - Tímabil 30. júní - 25. júlí
Unglingar fæddir 1999, 551 krónur á klst. Unnið í 5 vikur - Tímabil 10. júní - 11. júlí
Unglingar fæddir 1998, 704 krónur á klst. Unnið í 8 vikur - Tímabil 10. júní - 1. ágúst. 
Athugið að árgangur 1998 þarf að skila inn skattkorti.



Skipulag starfsemi:
Vinnuskólinn er rekinn af Norðurþingi og heyrir undir Tómstunda- og æskulýðssvið Norðurþings.  Dagleg stjórn Vinnuskólans er í höndum flokkstjóra.  Helstu verkefni Vinnuskólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins og umhverfi hans.  Einnig munu unglingarnir vinna að skemmtilegum og uppbyggilegum hliðarverkefnum.  Unnið er alla virka daga vikunnar, 4 klukkustundir á dag.  Vinnudagurinn er frá 8:00 til 12:00 eða 12:00 til 16:00.  Endanlegt skipulag ræðst af fjölda umsókna. 

Röðun í flokka:
Vinnuskólinn lítur svo á að unglingar þurfi að venjast því að vinna með hverjum sem er.  Þeim er því ekki raðað eftir vinahópum.  Ekki er víst að þeir sem eru settir í hóp í upphafi verði saman allt sumarið.   Margar ástæður geta orðið til þess að endurraða þurfi í hóp eða hópa.

Helstu kröfur til nemenda Vinnuskólans:
Gert er ráð fyrir að unglingur sem sækir um vinnu í Vinnuskóla Norðurþings sé með umsókn sinni að lýsa yfir áhuga sínum á því að taka þátt í starfi skólns og vinna samviskusamlega þau verk sem honum eru falin.  Unglingnum ber að sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur skólans, íbúa sveitarfélagsins og þá sem með honum vinna.  Klæðnaður þarf að vera í samræmi við veður og vinnuaðstæður hverju sinni.  Unglingar eru beðnir um að hafa með sér nesti til að neyta í kaffitímum.  Tóbaksnotkun er alfarið bönnuð í Vinnuskólanum.  Fari unglingur ekki  að tilmælum flokkstjóra eða sætti sig ekki við þæt starfs- og vinnureglur sem gilda í Vinnuskólanum verður honum gefið tækifæri til að bæta sig.  Beri það ekki árangur er hann sendur heim launalaust í lengri eða skemmri tíma.

Ofnæmi eða aðrir kvillar:  Vinnuskólinn reynir að mæta vandamálum vegna ofnæmis eða annarra sambærilegra kvilla.  Til að hægt sé að taka tillit til slíkra beiðna þarf að fylgja vottorð sérfræðings.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Narfi Rúnarsson yfirmaður Vinnuskólans, tun@nordurthing.is  sími: 6635290.

Með því að senda inn umsókn staðfestir foreldri/forráðamaður að hafa kynnt sér reglur þessar.

Styðjið á hlekkinn hér að neðan til að fylla út rafræna umsókn:



Engin ummæli:

Skrifa ummæli