þriðjudagur, 5. maí 2015

Vinsamlegast athugið:  Sú villa slæddist inn í bréfið sem sent var gegnum Mentor að vinnutími Vinnuskólans í sumar væri frá 8-12 eða 12-16.  Hið rétta er að vinnutíminn er fyrir hádegi frá 8-12.

sunnudagur, 3. maí 2015

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Norðurþings fyrir sumarið 2015


Hér er hlekkur inn á rafrænt umsóknareyðublað:

Rafrænt umsóknareyðublað

Helstu upplýsingar og reglur Vinnuskólans - lesist vel.

Í sumar verður Vinnuskóli Norðurþings starfandi fyrir ungmenni fædd árin 2000 og 2001, þ.e. þá sem í vor ljúka 8. og 9. bekk.  Vinnuskólinn er að þessu sinni ekki í boði fyrir ungmenni sem eru að ljúka 10. bekk en þeim býðst að sækja félagsmiðstöð sem verður starfrækt í allt sumar.

Árgangur 2001 mætir í Tún kl. 08:00 mánudaginn 6. júlí
Árgangur 2000 mætir í Tún kl. 08:00 mánudaginn 15. júní

Laun eru sem hér segir:
Unglingar fæddir 2001, 
459 krónur á klst. Unnið í 4 vikur - Tímabil 6. júlí - 31. júlí
Unglingar fæddir 2000, 570 krónur á klst. Unnið í 5 vikur - Tímabil 15. júní - 17. júlí

Skipulag starfsemi:
Vinnuskólinn er rekinn af Norðurþingi og heyrir undir Tómstunda- og æskulýðssvið Norðurþings.  Dagleg stjórn Vinnuskólans er í höndum flokkstjóra.  Helstu verkefni Vinnuskólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins og umhverfi hans.  Einnig munu unglingarnir vinna að skemmtilegum og uppbyggilegum hliðarverkefnum.  Unnið er alla virka daga vikunnar, 4 klukkustundir á dag.  Vinnudagurinn er frá 8:00 til 12:00. 

Röðun í flokka:
Vinnuskólinn lítur svo á að unglingar þurfi að venjast því að vinna með hverjum sem er.  Þeim er því ekki raðað eftir vinahópum.  Ekki er víst að þeir sem eru settir í hóp í upphafi verði saman allt sumarið.   Margar ástæður geta orðið til þess að endurraða þurfi í hóp eða hópa.

Helstu kröfur til nemenda Vinnuskólans:
Gert er ráð fyrir að unglingur sem sækir um vinnu í Vinnuskóla Norðurþings sé með umsókn sinni að lýsa yfir áhuga sínum á því að taka þátt í starfi skólns og vinna samviskusamlega þau verk sem honum eru falin.  Unglingnum ber að sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur skólans, íbúa sveitarfélagsins og þá sem með honum vinna.  Klæðnaður þarf að vera í samræmi við veður og vinnuaðstæður hverju sinni.  Unglingar eru beðnir um að hafa með sér nesti til að neyta í kaffitímum.  Tóbaksnotkun er alfarið bönnuð í Vinnuskólanum.  Fari unglingur ekki  að tilmælum flokkstjóra eða sætti sig ekki við þær starfs- og vinnureglur sem gilda í Vinnuskólanum verður honum gefið tækifæri til að bæta sig.  Beri það ekki árangur er hann sendur heim launalaust í lengri eða skemmri tíma og verður forráðamönnum þá gert viðvart.

Ofnæmi eða aðrir kvillar:  
Vinnuskólinn reynir að mæta vandamálum vegna ofnæmis eða annarra sambærilegra kvilla.  Til að hægt sé að taka tillit til slíkra beiðna þarf að fylgja vottorð sérfræðings.

Myndatökur: 
Í sumar verður tekið upp myndefni af starfsemi Vinnuskólans til kynningar og skemmtunar.  Forráðamenn þeirra sem kjósa að birtast ekki á mynd skulu óska eftir því áður en Vinnuskólinn tekur til starfa.  Fullt tillit verður tekið til þeirra óska.

Nánari upplýsingar veita
Aðalbjörn Jóhannsson yfirflokkstjóri,
tun@nordurthing.is  sími: 8455541
Sigurður Narfi Rúnarsson yfirmaður Vinnuskólans,
tun@nordurthing.is  sími: 6635290.


Með því að senda inn umsókn staðfestir foreldri/forráðamaður að hafa kynnt sér reglur þessar.

Rafrænt umsóknareyðublað